Íslenskt verkbókhald fyrir íslenskar útfararþjónustur

Meiri yfirsýn
í hverju máli

Viðtöl, útfarir og kostnaður í einu heildstæðu verkbókhaldi. Hannað utan um fólkið, upplýsingarnar og verkefnin sem skipta máli.

Panta kynningu Kynntu þér Funeralis
Starfsmaður skoðar dagskrá og stöðu útfararmála á stórum yfirlitsskjá
Dagskrá og staða á einum stað Yfirlit úr sýniútgáfu

Örugg varðveisla

Upplýsingar á einum stað, þar sem hægt er að ganga að þeim vísum.

Skýr yfirsýn

Viðtöl, dagskrá, pantanir og kostnaður fylgja hverju máli.

Færri lausir endar

Minni tvískráning, greiðari vinnsla og meira öryggi í daglegu starfi.

Eitt heildstætt kerfi

Frá fyrsta viðtali
til lokauppgjörs

Funeralis er íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki. Kerfið er hannað fyrir íslenskar útfararþjónustur og heldur utan um hvert mál frá fyrstu skráningu til lokauppgjörs.

Markmiðið er einfalt: að varðveita upplýsingar á öruggan hátt, auðvelda aðgengi að þeim og gefa skýrt og gott yfirlit yfir stöðuna. Það flýtir vinnunni og eykur öryggi.

Viðtalsform Funeralis með opnum fellilista fyrir kistulagningu
Viðtalsform með opnum fellilista

01 / Viðtöl og upplýsingar

Vandað viðtal
skýr skráning

Haltu utan um óskir aðstandenda, tengiliði, greiðanda og framkvæmd útfarar með skipulögðu viðtalsformi.

Upplýsingarnar fylgja málinu, svo auðveldara er að finna það sem þarf og fylgja því eftir.

Pantanir beint úr kerfinu

Pantaðu skilti á krossa og borða á kransa og vendi beint í gegnum Funeralis. Allur kostnaður skráist beint á viðkomandi verk í kerfinu.

Dánartilkynningar

Búðu til og birtu dánartilkynningar beint úr kerfinu. Haltu utan um upplýsingarnar sem fylgja málinu á sama stað.

02 / Dagskrá og staða

Alltaf skýrt
hvað er næst

Sjáðu fram undan í dagskránni og fylgstu með stöðu mála á skýrum yfirlitsskjá. Þannig sérðu hvað er staðfest, hvað bíður staðfestingar og hvar vantar upplýsingar.

  • StaðfestTilbúið og staðfest
  • ÓstaðfestBíður eftir staðfestingu
  • !
    VantarUpplýsingar sem þarf að fylgja eftir

03 / Verk og kostnaður

Kostnaðurinn
fylgir málinu

Funeralis er fullkomið verkbókhald. Allur kostnaður skráist beint á viðkomandi verk í kerfinu.

Vinna, flutningar, efni og önnur þjónusta safnast í skýrt kostnaðaryfirlit með hverri útför.

Tenging við bókhald

Tengja má Funeralis við bókhaldsforrit, svo sem Payday, til að auðvelda flutning upplýsinga og draga úr tvískráningu.

Opinn vallisti fyrir efni og þjónustu í Funeralis á fartölvu
Allur kostnaður beint á verkið

Öryggi · Skipulag · Yfirsýn

Gakktu að upplýsingunum vísum

Örugg varðveisla og aðgengilegar upplýsingar eru meginmarkmið Funeralis. Með betra skipulagi og færri lausum endum gefst meiri tími fyrir fólkið sem skiptir máli.

Hafa samband

Panta kynningu

Sjáðu hvernig Funeralis getur stutt við daglegt starf hjá þinni útfararþjónustu.

Betra skipulag
meiri hugarró

Fáðu kynningu á viðtölum, yfirliti, pöntunum og verkbókhaldi í Funeralis.

Panta kynningu í tölvupósti